Sú staðreynd, að Ísrael skuli enn hafa einhverja rödd í alþjóðasamfélaginu, segir meira en hægt er að lýsa í fáum orðum.
Það segir okkur í fyrsta lagi, að það er hægt að komast upp með hvað sem er ef peningavald er annars vegar. Allt er falt fyrir peninga, fólk selur sál og samvisku, þegar nægar upphæðir eru í boði. Þetta hafa Zionistar alltaf vitað og spilað á ótæpilega.
Fyrir tæpum 40 árum síðan varaði Nixon Bandaríkjaforseti við því í viðtali, að völd Zionista innan BNA væru orðin það mikil, að Bandaríkin ættu í vök að verjast t.d. með sín utanríkismál, m.a. það, hvaða ríki þeir vildu velja sér sem viðskipta og vinaríki.
Ofríki og yfirgangur Zionista hefur síðan þá bara haldið áfram að blómstra í skjóli gengdarlausrar spillingar. Mútuþægni mannskepnunnar er nefnilega sterkari eigind en heiðarleiki. Framapotið er hærra skrifað í vestrænni menningu heldur en mannúðin. Hjarðhegðun gerir þeim erfitt fyrir, sem vilja fara aðrar leiðir, og oft betri, en þær villuslóðir sem áróðursveiturnar leggja fyrir fætur manna.
Þeir sem synda á móti straumnum eru iðulega úthrópaðir sem óæskilegir andófsmenn og samsæriskenningasmiðir, því þeir voga sér að rugga bátnum á hans „þægilegu“ siglingu gegnum lífið. Best þykir að setjast sem lengst frá borðstokknum, til að lágmarka hættuna á að sjá hvað leynist undir sléttu yfirborðinu. –
Þessi heimssýn er nánast dauðadæmd. Þeir sem stýra bátnum um þessar mundir eru hættulegustu óvinir mannkyns, ríki sem brýtur öll lög mannréttinda í skjóli peninga- og vopnavalds, traðkar á mannúðinni hvar sem hana er að finna og ætlar sjálfu sér æðsta sess og alger yfirráð yfir mannlífi á þessari jarðarkringlu. – Og við verðum bara að sitja í helvítis helfararskútunni og halda okkur þar til hún annað hvort sekkur, eða einhverjir dugandi skipverjar nái tangarhaldi á stýrinu og snúi fleyinu í örugga höfn.
Þangað til ættum við að reyna að kasta fyrir borð einhverju af því veganesti sem betur væri varið í annað og þarfara en að borga fargjaldið með feigðarfleyinu. Það eru margir hungraðir munnar sem gætu þegið bita frá okkur.
Ég minni á hjálparstarf Vonarbrú sem heldur utan um rúmlega 70 fjölskyldur á Gaza og sömuleiðis vísa ég í söfnunarreikning Eman Amra sem hefur beðið mig aðstoðar við að kynna söfnun sína.
Kíkjum út fyrir borðstokkinn og hjálpum þeim sem geta það ekki upp á eigin spýtur
Birtist á Facebook síðu höfundar.
